| Se pressemelding
på islandsk om:
Vesturáll,
næsti nágranni Golfstraumsins
golfstraumurinn
hafið skilur ekki að
hafið bindur saman
hafið tengir saman
því það er sami sær sem berst að ströndum okkar
sömu bárur bera öll okkar skip
og sama djúpa fljótið, fljótið í hafinu,
leikur við strendur
hin mikla hitalögn hafsins,
golfstraumurinn
og án golfstraumsins
leituðu farfuglar aldrei norður
til að boða vorkomu með dillandi söng í fjöruborði
og miðnætursólin héngi á bláþræði
eins og náköld mynt í gagnslausum gjaldmiðli
í hvelfingum kuldans
án golfstraumsins
grúfði myrkur yfir húsum
og heimili okkar væru yfirgefin
og gengin spor okkar sorfin af þögn
án golfstraumsins
frysu kartöflur fastar í moldu og tré misstu
laufskrúð sitt, hlátur hljóðnaði og gleðin
tilkynnti aðsetursskipti, fiskar syntu villislóð
og nyrsti bær Noregs héti Namsós og nóttin
væri ekki lengur stjörnubjört og ekkert sæist
nema fjarlægð milli stjarna; myrkur hjartans
því án golfstraumsins
þekti jökull allar slóðir okkar
og legði landið í auðn
gleymið því ekki, haf endurspeglar himinn
og í hafi streymir hið eilífa norðurljós, golfstraumurinn
þessi hitalögn
sem nær stranda á millum, frá manni til
manns, því við erum meginlönd
sem mætumst í þessu fasta, fljótandi
handabandi
Formáli eftir Lars Saabye Christensen sem lesinn var af höfundi um borð
í norsku
strandgæsluskipi þegar verkefnið Vesterålen 2000 þakkar Golfstraumnum
hófst
formlega þann 18. september 1999. Auk fulltrúa staðarmanna tóku
sendiherrar
"Golfstraumslandanna“ þriggja, Mexíkós, Gvatemala og Íslands,
þátt í athöfninni.
Þýðing: Matthías Kristiansen
|